Júlía
25.01.2008 13:40:22 / Berglind

25.janúar 2008

25.janúar 2008

 

Berglind skrifar 

25.janúar er aftur runninn upp og er þetta ofboðslega erfiður dagur, ef ekki enn erfiðari en í fyrra. Á hverjum einasta degi hugsa ég til hennar og sakna hennar svo sárt. Ég vildi óska þess að ég gæti haft hana hjá mér að spjalla við mig, hlæja með mér, gráta með mér, kúra með mér, njóta lífsins með mér og áfram gæti ég talið. Það nístir hjarta mitt hvern einasta dag að hún sé ekki hér með mér. En úr því sem komið var... var gott að hún fékk frið frá sjúkdómnum og kvölunum sem höfðu sest að í líkama hennar.

Elsku besta mamma mín ;* Ég veit að þú ert fallegur engill á himnum sem finnur ekkert til og fylgist með okkur hérna og ert með okkur ;*

Ég elska þig meira en ALLT og sakna þín MESTAST!

Þín elskandi dóttir að eilífu

Berglind

 


» 14 hafa sagt sína skoðun

13.09.2007 17:00:41 / julia

Breytingar

Jæja það er búið að vera nóg að snúast hjá mér en núna erum við að skvera Illugagötuna bæði hátt og lágt og tekur það allan minn tíma þessar vikurnar en ég skal vera duglegur næstu daga að segja ykkur frá því hvað ég er að gera.

 

Kveðja Jói Ragg


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.05.2007 11:36:40 / julia

Bloggleysi

Sæl öllsömul

 Þetta bloggleysi mitt er nú orðið hálf skammarlegt fyrir mig en við Ragnar Þór erum búnir að vera við veiðar á kolmuna í Færeysku lögsögunni síðustu 4 vikur en við erum ekki búnir að vera í símasambandi þar og einungis komið tvisvar til Eyja þann tíma og ekki stoppað nema í rúma 2 sólahringa þennan tíma. Annars er það að frétta að núna um helgina er sjómannahelgin en ég og Ibbidý ætlum að stinga af og fljúgum í nótt til KÖBEN og ætlum að vera þar fram á sunnudagskvöld en síðan förum við Ragnar Þór á sjó líklega aftur á mánudaginn. En Ragnar Þór og Berglind ætla að taka sjómannahelgina með stæl hérna í Eyjum og eru nokkrir vinir þeirra af höfuðborgarsvæðinu að koma til þeirra í heimsókn um helgina til að upplifa alvöru sjómannahelgi að hætti Eyjamanna það er allavega pottþétt meirir stemming hér heldur en á Akureyri þar sem að það á ekki einu sinni að halda upp á sjómannadaginn. Mér langar líka að koma á framfæri samúðarkveðjum til fjölskyldu Ástu Lovísu en hún lést í gær eftir harða en stutta baráttu við krabbamein. Annars skal ég reyna að skrifa eftir helgina hvernig Köben var og hvernig sjómannahelgin fór höndum um krakkana mína og þeirra vini en þangað til eftir helgi bless bless.

 

Kær kveðja

                 Jói Ragg


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.03.2007 18:02:48 / julia

Loðnuvertíð lokið

Jæja þá er loðnuvertíð 2007 lokið og við feðgarnir komnir í land og förum ekki á sjó aftur fyrr en eftir páska:haha: en um páskana ætlum við að fara nema hvað annað en til London öll sömul ég og Ibbidý með Berglindi, Ragnar Þór ásamt peyjunum hennar Ibbidý Binna og Gunnari Inga en það verða einhverjir 15-20 Eyjamenn með okkur í þessari ferð8|. Við förum á leik Arsenal og West Ham síðan förum við á tónleika með Razor light förum í leikhús og sjáum Blue man show þannig að það verður nóg um að vera hjá okkur, síðan ætla Ragna Andy og Daníel að koma og vera með okkur í 3 daga í London8) en annan í páskum þá er bank holliday hjá Bretunum þannig að þau fá langa helgi hjá okkur í London og ætla með okkur á leikinn tónleikana og í leikhúsið en Andy er nú ekkert spenntur að fara á einhvern Arsenal leik því þar sem að hann er Breti þá er hann sko ekkert hrifinn af þessum liðum sem að eru með lítið af Englendingum í sínu liði en Daníel strákurinn hans hann heldur með Tottenham:evil: greyið:evil: en Ragna hún er náttúrulega Nallari út í gegn:P. En eftir páska þá förum við að veiða kolmuna og þar sem að kokkurinn er að hætta þá sótti ég um að verða kokkur um borð þá vona ég að ég fái kokksplássið en það kemur nú vonandi fljótlega í ljós. Jæja ég læt þetta duga að sinni og hafið þið það sem allra best öll sömul.

 

Kær kveðja

                   Jói Ragg:lol:


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.02.2007 22:41:12 / julia

Smá fréttir af okkur á Eyjunni fögru

Langaði að setja smá stubb um okkur litlu familýuna en eins og ég sagði í síðasta pistli þá er loðnuvertíð á fullu hjá okkur en við Ragnar Þór erum búnir að vera að róa á 2 bátum þ.e.a.s. á Kapinni og síðan skiptumst við á við áhöfnina á Sighvati Bjarna að fara út á Ísleifi þannig að þegar við komum í land þá hlaupum við með draslið okkar yfir á næsta skipð og beint út aftur enda er þetta kapphlaup við tímann að ná sem mestum verðmætum á sem skemstum tíma, enda kvörtum við ekki yfir kaupinu okkar þessa dagana. Berglind er síðan búin að vera á fullu á vöktum hjá Vinnslustöðinni við að frysta loðnuna og hefur hún einnig verið ánægð með kaupið sitt enda mikil vinna sem að liggur að baki þessu öllu saman. Jæja við fengum 2 tíma stopp núna áður en við förum á sjó aftur þannig að við byðjum kærlega vel að heilsa öllum þangað til næst.

 Kær kveðja

                 Jói Ragg


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.02.2007 09:00:25 / julia

Loðnuvertíð hafin

Jæja þá er loðnuvertíð hafin eða þannig en nú er í dag þann 12 Febrúar og vertíðin ekki komin í fullt gang enn, við Ragnar Þór erum búnir að fara í 3 túra og við komum í land í nótt kl 3 með einhver 400 tonn síðan á aðfaranótt föstudags en því miður þá hefur veðrið verið að fara illa með okkur og vonandi að það fari að snúast í rétta átt hvað loðnuveiðar varðar. En það er nú líka pressa í landi að við fiskum eitthvað því Berglind er á vöktum í Vinnslustöðinni í loðnufrystingu þannig að við fáum heldur betur að heyra það ef að við fiskum ekki eitthvað. Annað að frétta hjá okkur er að Lísa Margrét og Arína Bára eru að koma í dag til að vera hjá ömmu sinni og afa og vonandi að við fáum að hitta þær eitthvað áður en að við förum á sjó.

 

Kær kveðja

               Jói Ragg


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.01.2007 17:23:39 / julia

+ Siggi smiður bráðkvaddur +

Mikið er ég orðinn þreyttur á öllum þessum dauðsföllum í kringum mig en núna þann 21 Janúar lést góður vinur minn hann Siggi smiður úti í London einungis 51 árs gamall og er ég að fara í enn eina jarðarförinna. Ég er búinn að þekkja Sigga smið í rúm 2 ár en við kynntumst einmitt úti í London þegar ég var fararstjóri í hópferð á Arsenal leik, okkur varð strax mikið til vina en við vorum mjög ólíkir að flestu leyti hann var þessi rólega týpa sem að fór ekkert fyrir. Í fyrra þá fórum við 5 ferðir saman til að horfa á Arsenal spila 4 sinnum til London og síðan á úrslitaleikinn í meistaradeildinni í París en Siggi hafði þann háttinn á að hann sagði Jói ef að þú ert að fara á leik þá lætur þú mig vita og ég kem með síðan fórum við líka alltaf á tónleika í þessum ferðum og þegar við hittumst í Leifsstöð þá sagði kallinn jæja Jói á hvaða tónleika erum við núna að fara á en þá ég var þá búinn að kaupa miða og alltaf einn auka fyrir Sigga því hann fór alltaf með mér og skipti þá engu máli hverjir væru að fara að spila, ég bara kem með.

 Við erum t.d. búnir að fara saman á Blondie, Rolling Stones, Status Quo, George Michael og fleiri en hann var einmitt mjög duglegur að kaupa sér músík í þessum ferðum okkar allavega svona 15-20 diska í hverri ferð en síðast fórum við saman núna fyrir jólin 15-18 Des og áttum frábæra daga saman eins og venjulega og næsta ferð hjá okkur átti að vera um páskana en ég mun bara fara með minninguna um Sigga í hjartanu mínu til London. Við vorum mjög duglegir að tala saman í síma og ef að ég hringdi í hann um helgi þá var hann svo til alltaf í sumarbústaðnum sínum sem að hann byggði sér fyrir einum 6 árum síðan og síðan var hann búinn að ákveða að koma til mín í sumar á sína fyrstu þjóðhátíð en hann verður víst bara að vera með okkur þá í anda.

 En ég og krakkarnir mínir við munum sakna Sigga smið eins og við kölluðum hann mikið en bæði Ragnar Þór og Berglind voru búin að vera með okkur á Arsenal leikjum og tónleikum, en það eru forréttindi að hafa fengið að eiga perlu eins og Sigga smið fyrir vin en hann hafði alla tíð búið einn og hann átti engin börn. Ég ætlaði að setja nokkrar myndir af Sigga hér inn en er í einhverjum vandræðum með myndasíðuna mína þannig að um leið og hún er kominn í lag þá mun ég setja myndirnar hér inn á forsíðuna.

Kær kveðja

                    Jói Ragg


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.01.2007 22:55:36 / julia

25.janúar 2007

Í dag er liðið akkurat eitt ár frá því að mamma kvaddi þennan heim eftir hetjulega baráttu við krabbamein. Ég veit að hún fylgist stolt með okkur fjölskyldunni af himnum þar sem hún er laus við allar kvalir ;* Við söknum þín svo sárt og elskum þig meira en allt ;*

Við fjölskyldan viljum þakka fyrir stuðninginn, hjálpina og vináttuna síðastliðið ár ;* Þið eruð öll yndisleg ;* Takk fyrir allt ;*

Kveðja Berglind

P.s Feðgarnir senda bestu kveðjur til ykkar allra af sjónum.


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.01.2007 02:23:04 / julia

Jói Ragg orðinn afi ???????????

Já ég er orðinn hálfgerður afi því í Desember þá gerðist Berglind svona heimsforeldribig grin þ.e.a.s. hún tók að sér að styðja eitt barn næstu árin sem að er í þessu tilviki 7 ára gamall drengur sem að á heima á Indlandi og borgar hún 2000 krónur á mánuði sem að sér fyrir skólagjöldum hans ásamt bókum og námsefni læknishjálp og einni heitri máltíð á dag.winking Ég er alveg voðalega stoltur af henni að gera þetta þó svo að hún hafi ekki mikið á milli handana sjálf að gefa svona af sér handa þeim sem að eru svo sannarlega hjálpar þurfi, hún fékk síðan jólakort frá stráknum þar sem að hann var að þakka henni fyrir og hún sendi honum jólakort og jólagjöf sem að var hálsmen með krossihappy. En annars að henni að frétta er að hún flutti út frá okkur feðgum núna í byrjun janúar en hún er búin að leigja sér íbúð hérna í næstu götu kjallaraíbúð á Brimhólabraut 33 og er svona að klára að koma sér fyrir en það er orðið alveg voðalega sætt hjá henni og finnst henni þetta líka vera ferlega spennandi að vera farinn að búa svona ein, en kosturinn fyrir mig er sá að hún er hérna í næstu götu þannig að það er mjög stutt á milli okkarsilly. Þó svo að ég sakni hennar af heimilinuat wits' end - New! þá skil ég hana mjög vel en hún er nú að verða 21 árs gömul núna í Mars og langar að fara að lifa sínu eigin lífi á sínum forsendum og í sinni íbúð, en hún er nú dugleg að koma að heimsækja pabba gamla og kíkja í mat svoleiðisclown. Hún er svo farin að vinna á spítalanum við þrif og aðstoð við sjúklinga og líkar henni mjög vel við það starf einnig er hún að vinna í Skýlinu í aukavinnu þannig að það er alveg nóg að gera hjá henni þessa daganatongue. Jæja ég læt þetta duga að sinni og þakka öllum sem að kíkja hérna inn á síðuna mína en ég hef alveg ferlega gaman að sjá hversu margir virðast fylgjast með okkur og einnig þegar fólk commenterar á skrifin mín svo þið megið alveg vera dugleg í því ef að þið nenniðwave - New!.

 

 



Kær kveðja

                  Jói Ragg


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.01.2007 13:32:32 / julia

Jól og áramót

        Ragnar Þór og Bidda amma              Berglind og Bidda amma

Jæja ég er kominn svolítið á eftir með bloggið mitttime out - New! þannig að ég byrja á jólunum núna en við skreyttum húsið jafn vel og venjulega ég og krakkarnir en það voru nú blendnar tilfinningar hjá okkur öllum og smá kvíði þar sem að þetta voru fyrstu jólin okkar án Júlíu og við vorum búin að velta okkur mikið fyrir því hvernig við ætluðum að halda jólin þessa síðustu mánuði hvort að við yrðum heima á Illugagötunni eða einhverstaðar annarstaðarnailbiting, en við komumst að þeirri ákvörðun að við yrðum eins og vanalega á Illugagötunni og Bidda var hjá okkur eins og vanalega. Við áttum alveg yndislegan aðfangadag og aðfangadagskvöldlove struck þó svo að það væru að sjálfsögðu blendnar tilfinningar og að hugurinn reikaði mikið til Júlíu og mikið skrítið að hafa hana ekki hjá okkur en við höfum haldið okkar eigin jól síðan 1987 og Bidda og Baldur heitinn búin að vera með okkur síðan 1988, en það er hefð hjá okkur að þegar mamma og pabbi eru búin að taka upp pakkana heima hjá sér þá koma þau yfir til okkar og eyða kvöldinu með okkur en sú hefð að heimilisfólkið á Illugagötu 25 komi yfir á 15 á sér mun lengri sögu en alveg síðan ég var lítill peyi þá fórum við alltaf yfir á 15 til að heimsækja Öddu og Engla en þau byggðu þetta hús árið 1965 þannig að þessi hefð er tæplega 40 ára gömul.wave - New!

                   Ragna og Andy                        Arína Bára mamma og pabbi

Ragna systir kom ásamt kærastanum sínum honum Andy og peyjanum hans honum Daníel og voru hjá mömmu og pabba yfir jólin en þau fóru aftur til Hull þann 29 Des og var alveg gríðarlega gaman að fá að hafa þau hjá okkur yfir hátíðarnarbig hug en Andy er algjör perla og er alveg draumamágur og síðan er hann alveg ofboðslega góður við hana litlu systir mína. Síðan á jóladag þá var matarboð hjá mömmu og pabba eins og vanalega við fjölskyldan og Hrefna Bald og Snorri Rúts eins og hefðin segir til um þá er spilað langt fram eftir kvöldi og um þessi jól þá spiluðum við Sequens ( held að þetta sé rétt skrifað ) og að venju var Baldara keppnisskapið í hávegum haft en Hrefna frænka er með eitt mesta og skemmtilegasta keppnisskap sem að ég hef upplifað enda breytir það hana engu með hvaða ráðum hún vinnur bara að hún vinni.clown Ég og krakkarnir vorum síðan með matarboð á 2 í jólum fyrir fjölskylduna og var það vel heppnað og elduðum við nautalundir með alles, síðan daginn eftir þá var pabbi búinn að fá salinn Týsheimilinu og fórum við saman pabbi, ég, Berglind, Ragnar Þór, Ragna, Andy og Daníel en þar fórum við í skalltennis og síðan var farið í fótbolta og vorum við að í heila 2 klukkutíma og greinilegt að fjölskyldumeðlimirnir eru í mismiklu formi en það er samt á engan hallað að segja að sá sem að er í besta forminu sé 45 módelið pabbi sjálfur og mættum við hin taka hann okkur til fyrirmyndar, en þetta var alveg snilldarhugmynd hjá pabba að koma þessu á og skemmtum við okkur alveg konunglega.cool

 

   Þórunn og ég                                  Angi og ég              Arína Bára og Lísa Margrét

Síðan 30 Des þá komu Þórunn systir og Angi með skvísurnar sínar Lísu Margréti og Arínu Báru en þau voru hjá okkur fram yfir áramót nema Lísa Margrét hún var fram yfir Þrettándanndaydreaming - New! eina sem að skyggði á heimsóknina þeirra var að þau voru öll meira og minna veik á meðan heimsókninni stóð en það er alltaf jafn gaman að vera í kringum þau enda er sjaldan lognmolla í kringum hana systur mína og er hægt að segja það sama um hann Anga og Andy algjör gullmoli og alveg ofboðslega góður við hana Þórunni sína.applause Lísa Margrét svaf nú flestar næturnar hjá mér hérna á 15 enda erum við algjörir perluvinur og hef ég alveg gríðarlega gaman að hafa hana hjá mér en hún er svona gömul sál í ungum líkama og við getum spjallað saman tímunum saman þó að hún sé ekki nema 9 ára.

 

           Ragnar Þór í HAM                          Arína Bára með afa sínum

    Það var nóg til af kökum                         Þórunn systir missti sig líka

      Þetta var hörku sýning                       Skálað í kampavíni á miðnætti

Gamlársdagurinnparty og kvöldið var með hefðbundnu sniði enda er það afmælisdagurinn hans pabba og borðuðum við hjá gamla settinu eins og ávalt eina breytingin miðað við undanfarna áratugi var sú að áður en skaupið byrjaði þá fórum við yfir hingað heim til okkar á 15 og horfðum saman á skaupið hér en þá voru Hrefna og Snorri búin að bætast í hópinn, síðan þegar skaupið var búið ( sem að við vorum öll ferlega svekkt með þetta árið at wits' end - New!) var farið í að skjóta upp en Ragnar Þór var í mikilli samkeppni við ókrýnda skotmeistara Illugagötunnar undanfarinn ár þá Bedda á Glófaxa og Vitta Helga en við feðgarnir misstum okkur ansi mikið er við versluðum skotfæri fyrir þessi áramótin enda tók það okkur tæpan klukkutíma að koma þessu öllu á loft en við höfum alveg ferlega gaman af öllu þessu flugeldadrasli en ég held að ég verði að segja að Ragnar Þór hafi verið skotkóngurinnapplause á Illugagötunni þessi áramótin þó svo að við séum engir kvótakóngar enda bara venjulegir hásetar en nafna hans og afa var nú alveg ofboðið þetta flugeldamagn hjá okkur feðgunum enda kannski ekkert skrítið, um nóttina fór ég á ball í fyrsta skipti á gamlárskvöld og skemmti ég mér alveg konunglega þar enda með alveg gríðarlega skemmtilegu fólki það er nefnilega ekki aðalmálið hvaða hljómsveit er að spila eða hversu margir eru á staðnum aðalmálið er hversu skemmtilegu og góðu fólki maður er meðcowboy. Þá er þetta ár 2006 liðið og er margs að minnast frá því bæði góðar og slæmar minningar en uppúr stendur náttúrulega fráfall Júlíu þann 25 Janúar og allt sem að því fylgdi og enn og aftur vil ég koma á framfæri frá mínum dýpstu hjartarótum þökkum til allra sem að stóðu við hliðina á okkur og veittu okkur ómetanlegan styrk og hjálp við þessar erfiðu stundir, mína fjölskyldu, Júlíu fjölskyldu, alla vini okkar og kunningja ásamt öllu því fólki sem að lét sér annt um okkur þó að við þekktum það lítið sem ekkert, en að vera á stað eins og Vestmannaeyjum í svona aðstæðum bæ, þar sem að allir þekkja alla og allir vita hvað sé að gerast þá eru Vestmannaeyjar eins og ein stór fjölskylda allir boðnir og búnir til að leggja sitt á vogaskálarnar til að rétta okkur hjálparhönd í hvaða formi sem að það er svo enn og aftur TAKK FYRIR OKKUR.big hug

                      Englarnir mínir tveir þau eru algjörir gullmolar

En ég er alveg gríðarlega stoltur af mér og börnunum mínum og þá börnunum sérstaklegaangel hvernig gengið hefur að vinna sig og byggja upp hægt og bítandi eftir alla þessa lífsreynslu en krakkarnir voru ekki nema 10 og 12 ára þegar þessi sjúkdómur bankaði upp á hjá okkur og 8 árum seinna þegar baráttunni lauk þá voru þau búin að fara í gegnum allan sinn unglingsaldur sem að getur nú verið erfiður hjá mörgum þó svo að ekkert ami að á heimilinu þá hafa þau vaxið og dafnað sem alveg ótrúlegir einstaklingar og sterkar persónur, krakkar ég er alveg óendanlega stoltur af ykkur þið eruð ótrúleg bæði tvö og eruð mér alltlove struck. Nú síðan var komið þrettándanum og eins og með alla hina viðburðina þá var hann samkvæmt hefðinni við borðuðum hangiket hjá mömmu og pabba og síðan var farið yfir á 15 til að fylgjast með er jólasveinarnir komu með blysin sín upp á Há og horfðum á flugeldasýninguna sem að þeir héldu en við vorum líka duglegir feðgarnir að skjóta upp og síðan fór skrúðgangan upp Illugagötuna og fram hjá húsinu okkar og fórum við inn í skrúðgönguna þar en við Lísa Margrét hoppuðum inn í skrúðgönguna þar og fórum með þeim upp á malarvöll til að kveðja þá ásamt Grýlu, Leppalúða, tröllum, álfum og öðrum furðuverum, eftir að fjörinu lauk upp á malarvelli þá fór ég upp í kirkjugarð eins og ég hef gert undanfarin 6 ár til að líta við hjá honum Stefáni tvíbba vini mínum en hann var einmitt jarðaður á þrettándanum fyrir 6 árum eftir að hafa orðið bráðkvaddur á Gamlársdagcrying árið 2000. En ætli ég láti þetta ekki duga í bili en ég á nú eftir segja frá helling meiru þannig að það verður ekki langt í næsta pistil frá mér en svona í lokinn vildi ég nefna það að ég er farinn að deita konu hérna í bænum en hún heitir Ingibjörg og er kölluð Ibbidý og krakkarnir mínir eru bara mjög sátt við málið og finnst mér það alveg frábært.

Kær kveðja

                   Jói Ragg wave - New!


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.01.2007 04:01:17 / julia

Afsökunarbeiðni

Ég vil byrja á því að byðja ykkur afsökunar á því hversu langur tími er síðan ég hef bloggað en ég mun bæta úr því mjög vel á næstu dögum með nokkrum færslum ásamt myndum af því sem á daga okkar hefur drifið undanfarið. Einnig vil ég þakka öllum þeim dyggu lesendum mínum fyrir hversu duglegir þeir eru að heimsækja síðuna mína og einnig þeim sem að eru duglegir að commenta á hana. Kveðja Jói Ragg

» 5 hafa sagt sína skoðun

11.12.2006 15:20:22 / julia

Þórunn systir 30 ára

Mín elskuleg systir hún Þórunn er þrítug í dag og langar mig til að óska henni innilega til hamingju með áfangann, ég man þennan dag fyrir 30 árum mjög vel og varð ég gríðarlega stolltur bróðir daginn þann. Við Þórum erum búin að bralla margt saman á þessum 30 árum enda erum við miklir vinir og höfum alltaf verið það þó svo að við séum með mjög líkt skap og getum alveg talað saman á Íslensku. En það eru forréttindi að eiga systur eins og hana ásamt því að vera svona miklir vinir líka og langar mér bara elsku Þórunn mín að þakka fyrir þessi 30 ár TAKK

Kær kveðja

                   Jói Ragg


» 6 hafa sagt sína skoðun

02.12.2006 22:04:49 / julia

DÓPBUST ??????????????

 

Það er nú aldeilis nóg búið að vera að gerast hjá litlu fjölskyldunni á Illugagötu 15 þessa síðustu viku en ég og Berglind mín við skelltum okkur í Herjólf á mánudaginn en framundan var hjá okkur verslunarferð eins og sönnum húsmæðrum sæmir:klikk:, ég er búinn að vera að skrifa niður síðustu 3 mánuði hvað vantar á heimilið og lágu okkar leiðir fyrst í IKEA váááá þvílík verslun. Við byrjuðum nú bara á neðri hæðinni og áður en yfir lauk þá vorum við búin að fylla þessa líka risakerruna af allskonar drasli og verðmiðinn eftir því og næsta hæð eftir og hún fór svipað með okkur, önnur full kerra en að hafa Berglindi með var svona eins og hálfgert FLASHBACK:^) það var bara eins og Júlía væri með því að Berglind tíndi allskonar drasl ofaní kerruna sem að ekki var á miðanum en ég hafði nú bara gaman af því. Nú um kvöldið var ég búinn að bjóða Gunsunni út að borða:haha: og ætluðum við að fara á Ítalíu á Laugarveginum til að hafa þetta svona alvöru huggó en okkur langaði svo að hafa hana Kimmy:evil: með en hún vara að vinna þetta kvöld á Vitabar þannig að við bara breittum og fórum rómó á Vitabar að borða og drekka og ég verð að segja eins og er ég á eftir að fara oft að þann hverfisbar því þetta er svona alvöru en Gunsa og Kimmy takk fyrir mig það er alltaf jafn gaman að vera nálægt ykkur SKVÍZZZZZZUR8|. Síðan rann þriðjudagurinn upp hann byrjaði nú alls ekki fallega því að Ragnar Þór hringdi í mig í hádeginu með slæmar fréttir tveir af fjórum kettlingunum okkar höfðu drukknað í baðkarinu heima:^) og honum leið mjög illa yfir þessu öllu saman en þetta var bara slys sem að hann gat ekki gert neitt að og ég ætlaði þá bara að drífa mig heim til hans en hann vildi frekar koma upp á land til okkar Berglindar og kom hann síðan um kvöldið með Herjólfi. Eftir að Ragnar Þór mætti á svæðið þá fórum við saman í Bíó fyrst var farið á Borat og verður að segja eins og eins og er að þar er snilldarmynd á ferðinni þó svo að ég hafi nokkrum sinnum fengið á meðan sýningu stóð mikinn KJÁNAHROLL  niður eftir bakinu á mér. Strax eftir að þeirri mynd lauk skelltum við okkur á nýjustu James Bond myndina en ég var nú ekki ánægður þegar þessi leikari var ráðinn þar sem að ég er mikill Bond aðdáandi en hann stóð sig frábærlega vel og hlakkar mig mikið til að sjá næstu Bond mynd 5 stjörnur fyrir Craig8|. Miðvikudaginn eyddum við bara í svefn og rólegheit en síðan um kvöldmatarleytið þá fórum við öll ég og mín börn ásamt Þórunni, Anga Lísu Margréti og Arínu Báru á Ruby tuseday:D  en eftir það fórum ég og börnin mín tvö ásamt Lísu Margréti í Bowling og til að gera langa sögu stutta þá auðvitað vann ég. Jæja þá rann upp fimmtudagur sem að átti eftir að verða svolítið spennandi en eftir að við vöknuðum þá var kíkt í kringluna og þar hitti ég félaga minn sem að var að fara heim um kvöldið með Herjólfi og ég sníkti far með honum úr bænum í Þorlákshöfn og var það alveg sjálfsagt þeir náðu í mig um kl 5 heim til Þórunnar systur og ég var með svona einhverja 15 poka af dóti úr IKEA og Rúmfatalagernum og drösluðum við því í bílinn:!:. Er við komum í Herjólf þá fór ég bara að sofa þar sem að ég átti klefa en er við komum að bryggju í Eyjum fór ég niður á bilaþilfar og í bílinn er um leið og stefni Herjólfs opnaðist og þustu þar inn lögreglumenn og komu þeir beint í áttina að bílnum sem að ég var farþegi í og  umkringdu hann og sögðu okkur að þeir væru með 100% öruggar uppl að það væru eiturlyf í bílnum:!: og þar með kom lögreglumaður inn í bílinn og honum var keyrt upp á lögreglustöð ( bílnum ), er þangað var komið þá voru þeir tveir sem að voru í aftursætunum settir beint í fangaklefa þar sem að þeir könnuðust ekkert við að þeir væru með efni8|. Nú tók við spennandi tími við hjá J.R. Group fíkniefnahundurinn var mættur á staðinn og hvað haldiði hann hljóp beint í fangið á mér og ég varð svo hrikalega stressaður að ég næstum því missti þvag í buxurnar en he he engin fíkniefnalykt af mér yes:haha:. En þá lagði hann í við bílinn og því miður þá dillaði hann rófunni ótt og títt FÍKNIEFNI í bílnum og endirinn var sá að ég fór heim kl eitt um nóttina en þá var ekki búið að finna neitt en er ég mætti á lögreglustöðina morguninn daginn eftir þá höfðu fundist 20 grömm af maríhúana og 7 grömm af hassi en ég var það alveg saklaus ( segja það ekki allir. ) Ég verð nú að hrósa lögreglumönnunum okkar sem að tóku þátt í þessu þeir voru virkilega almennilegir í alla staði virkilega professional og komu fram við alla af stakri nærgætni eins og þeir gátu og ég gef þeim 10 í einkunn fyrir allt sem að þeir gerðu og toppurinn var að þeir fundu fíkniefnin. Jæja verum öll vinir og njótum að vera til:S.

 

Kær kveðja

                  Jói Ragg

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

26.11.2006 22:57:17 / julia

Nýjar fréttir

     Lísa Margrét Ég og Arína Bára                            Berglind ásamt systrunum

Það er búið að vera nóg að gera hjá okkur undanfarið en Þórunn systir og Angi komu um helgina með stelpurnar sínar og gistu hjá mömmu og pabba en það var mikið gaman að fá þau í smá heimsókn á eyjuna fögru. Lísa svaf hjá okkur á föstudagskvöldinu enda mikið að gera hjá henni að hugsa um kettlingana okkar en þeir eru fjórir og eru sko aldeilis fjörugir þessa dagana. Ég verð líka að segja eina sögu af uppáhaldinu mínu henni Lísu Margréti en hún svaf hjá okkur fyrsta kvöldið og Berglind sagði henni að hún mætti vekja sig kl 12 og ekki mínútu fyrr en Berglindi finnst svo ofboðslega gott að sofa en kl ellefu mínútur í 12 þá ýtti Lísa við Berglindi og hvíslaði í eyrað á henni og sagði Berglind .ú mátt sofa í ellefu mínútur í viðbót og þá vek ég þig.

            Þarna sést vel hversu mikið risakast þetta var og síldin um allan sjó

 

Bræla er nú búin að hamla síldveiðum hjá okkur í þessum mánuði en við fórum út um miðnætti í gær og komum í land kl hálfátta í kvöld með einhver 750-800 tonn, en þetta tókum við í einu kasti einhverja rúma mílu fyrir utan Pétursey en ég held nú að það séu ansi mörg ár síðan svona risakast hafi verið tekið á síldarmiðunum við Íslandsstrendur en það voru örugglega einhver 16 – 1800 tonn í nótinni og var mikið ævintýri að upplifa þetta og sjá þetta með eigin augum en síðan gáfum við Huginn VE 55 einhver 200 tonn en restina misstum við í hafið. Ég og Berglind ætlum að skella okkur til Reykjavíkur á morgun með Herjólfi til að fara í smá verslunarleiðangur í borg óttans við þurfum að fara í IKEA, rúmfatalagerinn og aðrar slíkar búðir en ég er búinn að skrifa niður lista hvað vantar á heimilið en þetta er fyrsta Reykjarvíkurferðin mín sem húsmóðir en nú þarf ég að hugsa fyrir því hvað vantar á heimilið en hingað til hefur það verið hlutverk Júlíu. Jæja ég er búinn að bæta við slatta af myndum á myndasíðuna en þið getið farið inn á hana neðst niðri til vinstri á þessari síðu undir myndir.

 

Kær kveðja

                   Jói Ragg

 

                 Arína Bára ( Ína fína ) með sparisvipinn sinn

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.11.2006 17:44:20 / julia

Berglind flutti til Reykjavíkur Berglind flutti heim aftur

Jæja frétt vikunar er að Berglind flutti til Reykjavíkur á mánudaginn en þar ætlaði hún að búa og vinna næsta árið:evil: en á fyrsta vinnudeginum sínum í Bónus þá fékk hún bráðaofnæmi og var brunað með hana beint á spítala:evil: þar sem að hún var sprautuð niður og send heim, síðan á miðvikudeginum fór hún aftur í vinnu og viti menn sama sagan ofnæmið gaus upp:$ og hún fann hversu lítil hún var þarna í borg óttans þannig að hún bara hringdi í pabba gamla og sagðist vera bara að koma heim aftur:D. Ég var nú mikið sáttur við það því ég vona að krakkarnir mínir verði sem lengst heima hjá mér hérna á Illugagötu 15 því þetta er það nú eina sem að ég á í þessu lífi að mér finnst þessi 2 börn:lol:, en Ragnar Þór er farinn að borga helming á móti mér af öllum lánum og rekstri þannig að hann er að eignast sína fyrstu eign og þá á móti pabba gamla. Annars er það að frétta að það er áfram bullandi síldveiði við Eyjar:haha: þegar veður er þokkalegt og eigum við að fara út á morgun sunnudag, en krakkarnir eru báðir upp á landi í afmæli hjá honum Jónba en það er haldið í klúbbnum í kvöld innilega til hamingju með afmælið Jónbi minn8|. Látum þetta duga að sinni og vona að allir hafi það sem bes8)t.

Kær kveðja

                   Jói Ragg:P


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9
Heimsóknir
Í dag:  5  Alls: 126798